Um okkur
Velbú eru frjáls félagasamtök um bætta velferð og lífsskilyrði búfjár á Íslandi.
Við erum fólk úr ólíkum áttum sem deilum ákveðnum lífsskoðunum varðandi velferð dýra og vinnum gegn þeirri slæmu þróun sem hefur átt sér stað seinustu áratugi á mörgum sviðum búfjárræktar.
Tilhneigingin hefur verið í átt að auknum verksmiðjubúskap þar sem velferð dýra hefur verið fórnað fyrir lægra vöruverð. Sú þróun hefur því miður ekki verið betri á Íslandi en annars staðar, einkum er snýr að svína-, eggja- og kjúklingaframleiðslu. Í raun má segja að þróunin hér hafi verið verri að því leyti að íslenskum neytendum stendur almennt ekki til boða kjúklinga- og svínafurðir, framleiddar með velferð dýranna að leiðarljósi.
Þessi þróun hefur verið hulin almenningi og ætlum við að stuðla að vitundarvakningu hjá neytendum sem við vonum að leiði til aukinnar velferðar í matvælaframleiðslu á Íslandi.
Okkar markmið er að verksmiðjubúskapur leggist af á Íslandi.
Fréttir
9.11.2011: Félagsfundur 29. nóvember 2011
Velbú heldur félagsfund þriðjudaginn 29. nóvember 2011 í Nýló. Fundurinn hefst kl. 20:00. Allir sem hafa áhuga á velferð búdýra eru hjartanlega velkomnir.